Jarðhitaleit í Austur-Skaftafellssýslu

17. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 10:39:34 (526)

    Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Fsp. hv. 4. þm. Austurl. hreyfir hér þörfu og mikilvægu máli og ég vil fyrir mitt leyti stuðla að því að þarna geti orðið framhald á og vil taka það fram að iðnrn. mun bjóða heimamönnum upp á það að hafa samstarf og þátttöku í kostnaði við gerð á því sem ég vil kalla yfirlitsúttekt á hagkvæmni jarðvarmaveitu fyrir Höfn og nágrenni í samanburði við þá tilhögun á húshitun sem þar er nú. Þetta er mikilvægt til þess að menn hafi bakgrunn þegar þeir taka ákvarðanir um framhald á rannsóknum vegna hugsanlegrar jarðvarmaveitu. En ég vil taka undir það með þingmanninum að þetta er hið merkasta mál og þarf stuðning þingsins.