Skoðanakönnun á þekkingu fólks á EES

17. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 11:12:35 (543)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs og er fyrirspurninni svarað en að þessu gefna tilefni vill forseti höfða til skilnings hv. þm. og hæstv. ráðherra á þingsköpum og biðja þá um að túlka mjög þröngt þessa grein, að bera af sér sakir, hér eftir.