Áhrif EES-samnings á sveitarfélögin

17. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 11:31:55 (551)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hefur beðið hv. þm. um að túlka þröngt þetta að bera af sér sakir og gat ekki fundið að það væru neinar ásakanir sem gæfu slíkt tilefni, en ef hv. þingmaður er harður á því þá getur forseti ekki neitað. Hv. 5. þm. Vestf. óskar að bera af sér sakir og kemur þá væntanlega í ljós hvaða ásakanir það eru.