Hjörleifur Guttormsson
:
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli og afla upplýsinga og ráðherrann hefur hér svarað. Mér finnst að það sem liggur fyrir í þessu stóra máli sé það að nauðsynlega þurfi að tryggja auknar tekjur til Ofanflóðasjóðs til þess að hægt verði að loknum vönduðum undirbúningi að ráðast í þær framkvæmdir sem skynsamlegar eru í þessu skyni.
Ég tel líka að það þurfi að rýmka heimildir laganna að því er varðar framlög sveitarfélaganna því að ég er viss um að sú kostnaðarhlutdeild þeirra upp á 20% af mannvirkjakostnaði er hamlandi varðandi aðgerðir sem þó eru brýnar í mjög mörgum tilvikum.