Evrópskt efnahagssvæði

18. fundur
Fimmtudaginn 10. september 1992, kl. 13:05:25 (576)


     Kristín Ástgeirsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Í trausti þess að stjórnarskrárþáttur EES-málsins verði tekinn til alvarlegrar athugunar og afgreiðslu hér á hinu háa Alþþingi munum við kvennalistakonur greiða fyrir því að samningurinn gangi til nefndar, en ég tek fram fyrir hönd okkar þingkvenna Kvennalistans að í því felst engin viðurkenning á því að samningurinn um hið Evrópska efnahagssvæði standist íslensku stjórnarskrána.