Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt mál að leiðbeiningar, aðvaranir eða upplýsingar um eðli og eiginleika framleiðsluvöru sem selja á á íslenskum markaði, ef þörf krefur vegna ákvæða eins og eru í þessum lögum, verði á íslensku.