Áhrif af stefnu ríkisstjórnarinnar á Háskóla Íslands

19. fundur
Föstudaginn 11. september 1992, kl. 14:07:26 (646)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þá er þessari umræðu lokið. Þrír hv. þm. hafa beðið um orðið til viðbótar við þá sem hér hafa talað en við erum komin fram yfir þann tíma sem leyfilegt er að láta slíka hálftímaumræðu standa. Þess vegna getur forseti því miður ekki leyft það tímans vegna að þingmenn fái að taka til máls öðru sinni. Einn hv. þm., sem bað um orðið en hafði ekki talað áður, getur því miður ekki komist að. Umræðunni er lokið. Hv. 4. þm. Norðurl. e. óskar eftir að tala um gæslu þingskapa.