Virðulegi forseti. Ekki er hægt að kvarta undan því að hæstv. ráðherra fari ekki á kostum hér í ræðustól. Hann býr til langa orðalista sem hann leggur í munn annarra en eru ættaðir beint úr hans eigin penna og gefur öðrum upp skoðanir sem þeir hafa ekki túlkað hér. En þetta er alveg nýr flötur á umræðum í þinginu og það er allt í lagi. Mín vegna má hæstv. ráðherra temja sér það.
Ég kemst ekki langt í svörum við ráðherrann í andsvari. Ég vil nefna örfá atriði, virðulegi forseti, í fyrsta lagi varðandi það sem er í pípunum, þær ákvarðanir í löggjöf og tilskipunum sem Evrópubandalagið hefur tekið. Ég veit ekki betur en það liggi fyrir að EFTA-ríkin þurfi að taka afstöðu til þess sem hefur verið ákvarðað frá 31. júlí 1991 til þess dags sem samningurinn á að taka gildi. Ég spyr hæstv. ráðherra: Vísar hann þessu frá? Er málið ekki þannig vaxið? Það væri fróðlegt að heyra það frá hæstv. ráðherra hvernig hann metur þá stöðu.
Í öðru lagi varðandi réttindi Íslendinga á erlendri grund. Þar greinir okkur á. Ég tel að við eigum ekki að haga ákvörðunum varðandi Ísland út frá því hvað við ímyndum okkur að eigi að vera eða þurfi að vera réttindi Íslendinga á erlendri grund. Ég starfa að málum til þess að gera sem bærilegast fyrir Íslendinga að búa í landinu og halda sig sem mest hér, þ.e. að þeir hafi tækifæri hér ef þeir kjósa svo. Ég hef ekki orðið var við neinar bænarskrár frá Íslendingum í útlöndum um að við förum að gera þennan samning. Það getur verið að hæstv. heilbrrh. hafi fengið þær, ég þekki þær ekki.
Hitt er svo annað mál að við höfum á undanförnum árum, og reyndar nokkuð langt til baka litið, verið að gera samninga við önnur ríki um réttindi þegna okkar erlendis og það m.a. eftir svonefndu Lúxemborgarspori í menntamálum, heilbrigðismálum, þróunarmálum, umhverfismálum og á fleiri sviðum. Það er með þeim hætti sem við eigum að tryggja réttindi okkar, sem erum erlendis og samskipti við erlend ríki og þurfum auðvitað hafa í sem bestu horfi.
Hæstv. forseti. Í þessum samningi felst stórfelld skerðing á sjálfsákvörðunarrétti Íslendinga um leið og með honum væri verið að brjóta íslensku stjórnarskrána.
Lagaákvæði á sviði heilbrigðis- og tryggingamála vegna EES
19. fundur
Föstudaginn 11. september 1992, kl. 17:02:02 (664)
Hjörleifur Guttormsson
(andsvar)
: