Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

21. fundur
Þriðjudaginn 15. september 1992, kl. 17:28:46 (747)


     Anna Ólafsdóttir Björnsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Mér þykir það mjög hart ef á að rjúfa þingstörf í dag vegna þingflokksfunda. Vissulega er ég ekki ósátt við það að fólk geti haldið þingflokksfundi eftir því sem ástæða er til, en ég vek athygli á því að til umræðu eru mál sem varða okkur öll mjög miklu og að einn af þremur flokkum sem eiga aðild að flutningi þessara mála hefur ekki haft möguleika á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hér er einfaldlega gefinn of knappur tími og hefur greinilega verið farið of fljótt út í að veita tíma til þingflokksfunda. Mér finnst þetta algjörlega óviðunandi.