Umræða um lagaákvæði er varða samgöngumál

22. fundur
Miðvikudaginn 16. september 1992, kl. 15:59:21 (846)

     Forseti (Pálmi Jónsson) :
    Forseti vill taka fram að það er alsiða að hæstv. ráðherrar eru spurðir spurninga sem þeir svara ekki í þeirri umræðu. Frv. fer væntanlega til þingnefndar. Varðandi þær athugasemdir sem hér hafa komið fram um form frv. hlýtur það að verða tekið til athugunar þar. Ekkert sérstakt er við það að athuga þó því sé ekki svarað af hálfu hæstv. ráðherra hér á þessum fundi hvort hann vilji leggja til breytingar á frv. sem hann leggur fyrir þingið. Allt er þetta í því fari að hv. þm. hafa nóg tækifæri til að fjalla um málið og vinna að breytingum á því á komandi tímum.