Tómas Ingi Olrich
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Hv. þm. Páll Pétursson tók upp hanskann fyrir hv. 7. þm. Reykn. sem er einn af flm. þessa frv. en er reyndar ekki staddur hér í dag. Ég vissi ekki að hann væri fjarverandi en það vildi svo til þegar frv. til stjórnskipunarlaga sem var á þskj. 30 var til umræðu í þinginu var hv. 7. þm. Reykn. ekki heldur við og varð að sækja hann í þingsalinn. Ég vil ekki leggja út af þessu neitt sérstaklega en tel þó að þarna komi fram áhugaleysi þingmannsins á þeim frumvörpum sem hann er hér að flytja.
Ég vil einnig taka það fram í sambandi við þau orð sem hv. þm. Páll Pétursson viðhafði hér um kosningabaráttuna í síðustu kosningum að þá er það alveg ljóst að formaður Framsfl. ákvað tiltölulega skyndilega og að því er virtist án mikils samráðs við sína flokksfélaga, bræður og systur, að setja fram slagorðið ,,X-B ekki EB``. Þetta kom mörgum framsóknarmönnum í opna skjöldu og þeir vissu ekki hvernig átti að vinna úr þessu. Það er alveg ljóst að í því kjördæmi þar sem ég bauð mig fram var kosningabaráttan að miklu leyti háð um þetta atriði og þá stóðu frambjóðendur Framsfl. í þeirri trú að það væri einmitt verið að tefla fram þeim árangri sem hefði náðst í EES-samningnum og þeirri lagasetningu sem þegar hefði farið fram á Alþingi sem átti að tryggja réttindi Íslendinga gegn hugsanlegum og meintum viljayfirlýsingum sjálfstæðismanna og Alþfl. um að ganga í EB sem ekki var reyndar fyrir hendi. Það er alveg greinilegt að þótt þingmaðurinn geti vitnað í að hluta til ógildar ákvarðanir Framsfl., eins og þessa um fiskveiðimálin áðan, voru þingmenn flokksins og frambjóðendur í hinum mestu vandræðum með þetta mál og vitnuðu skýrt í þann árangur sem Framsfl. hafði náð í viðræðunum um EES-samninginn.