Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 14:17:29 (907)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hlýtur að vekja athygli hv. þm. á því að þessi ræða og aðrar slíkar teljast ekki andsvör. Ég hygg að hv. 3. þm. Reykv. sé fullfær um að svara þeim andsvörum sem til hans er beint. Nú hefur hann óskað eftir að svara þessu andsvari og forseti getur auðvitað ekki annað en orðið við því.