Björn Bjarnason
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég kvartaði undan því áðan að beint var fyrirspurnum til hv. 3. þm. Vestf. í andsvari við mig. Svo kemur hv. 8. þm. Reykn. sem þannig stóð að málum og kvartar undan því að honum finnist að hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson hafi ekki haldið sér við andsvarahefðina. Það er eins og annað í málflutningi hans, það stendur ekki steinn yfir steini í honum. En þetta var athyglisvert sem fram kom í ræðu hv. þm. Guðmundar Hallvarðssonar og sýnir náttúrlega hvað málið var komið langt þegar hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson var fjármálaráðherra að hann var farinn að senda félögum hér í borginni bréf um það hvernig ætti að bregðast við eftir að þessi samningur væri orðinn að lögum og kominn í gildi. Þannig lágu þessi mál skýrt og skilmerkilega fyrir þegar gengið var til kosninganna vorið 1991.