Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 14:29:56 (916)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti hefur þegar fært það til bókar en vill að þessu gefna tilefni harma mjög að þessar umræður hafi átt sér hér stað. Það er ákaflega erfitt fyrir forseta að vísa mönnum úr ræðustóli þegar þeir hafa hafið mál sitt og afar erfitt fyrir forseta að vita hvað til stendur þegar menn biðja um orðið til að bera af sér sakir eða veita andsvar. Forseti hlýtur því að verða að treysta hv. þm. til að kynna sér þingsköp að því marki að annað eins og þetta komi ekki fyrir.