Ólafur Þ. Þórðarson
(andsvar)
:
Herra forseti. Ekki veit ég hvort stjórnmálafræðingum er kennt að þeir eigi stöðugt að reyna að ljúga sig frá vitleysunni en aldrei að játa að þeim hafi orðið á mistök. Ég veit ekki hvort það er kennt. En hv. 3. þm. Vestf. veit það mætavel að því var teflt fram sem hreinum andstæðum annars vegar hvort menn styddu tvíhliða samning eða hvort menn styddu EES. Hér lætur hann eins og hann hafi í kosningabaráttunni stutt hvort tveggja. Það er lygi að svo hafi verið. Þessi grein tekur af öll tvímæli um það. Hann segist hafa stutt stefnu Sjálfstfl., eins og hún var þá, þ.e. að hefja tvíhliða viðræður við EB um lækkun tolla. Hann væri maður að meiri ef hann segði hér: Já, ég tel að það hafi verið rétt. Mér hefur snúist hugur. Hann hefur ekki þrek til að segja það heldur heldur hann því blákalt fram að hann hafi í reynd stutt hvort tveggja á þessum tíma. Þetta er málflutningur sem ég kann ekki að meta og ég ætla að segja Einari Kristni Guðfinnssyni það að þetta er málflutningur sem Vestfirðingar kunna heldur ekki að meta.