Flm. (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Það kann að vera að tölurnar sem standa á bak við flokkana í þessari könnun séu það lágar að þær séu ekki marktækar, þ.e. niðurstöðurnar varðandi einstaka flokka verði ekki marktækar eins og hæstv. utanrrh. sagði. Það kann vel að vera. En engu að síður felst í þessum tölum ákveðin vísbending. Við erum oft að fá skoðanakannanir sem við verðum að túlka og ég er ein af þeim sem taka skoðanakannanir mjög varlega af hvaða tagi sem þær eru, hvort sem þær mæla fylgi flokka eða afstöðu til mála eins og hér. En ég horfi ekki fram hjá þeirri staðreynd að þær gefa manni vísbendingu um hluti og það ber að taka þá vísbendingu alvarlega. Þó ég taki ekki Alþfl. sérstaklega fyrir þá er samt ljóst að 46,2% þjóðarinnar eru ósammála því að þjóðin muni einangrast ef hún gerist ekki aðili að EES og málflutningur ráðherranna hefur ekki síst gengið út á það að hún muni einangrast þannig að þeir hafa þá ekki komið þessum rökum sínum og málflutningi til skila. Það stendur eftir.
Í öðru lagi veit ég ekki hvort ráðherrann var að veita andsvar við minni ræðu þegar hann sagðist verða að leiðrétta þá vitleysu sem tuggin hefði verið upp hér í dag að hann teldi þjóðina svo vitlausa að hún gæti ekki tekið afstöðu til málsins. Ég kenndi þessar skoðanir aldrei við utanrrh. sérstaklega, ég sagði að ýmsir andstæðingar þjóðaratkvæðagreiðslu væru þessarar skoðunar. Ég nefndi ekki utanrrh. sérstaklega í því sambandi. En hann eignar sér greinilega þessi sjónarmið hér í andsvari sínu.