Kjaradómur

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 18:32:34 (965)

     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :

    Hæstv. forseti. Hér hafa komið fram alveg nýjar upplýsingar. Ég hef ekki heyrt fyrr að orsök alls þessa klúðurs hafi verið ótti við laun --- ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt --- dómara og presta og gamalla embættismanna sem lokið hafa löngum starfsferli og njóta þess nú í einhverju. Voru það þessir þrír aðilar sem ollu öllu þessu írafári? Ég vil gjarnan að hæstv. ráðherra staðfesti hvort ég skil þetta rétt.