Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég tel að ræða hv. þm. hafi gefið tilefni til þess að ég segi að mér finnst það vera framlag til þessarar umræðu sem kom fram í orðum hans, bæði nú og fyrr. Ég tel einmitt að þingmenn og þá ríkisstjórnarflokkarnir ásamt stjórnarandstöðuflokkunum ræði það hvort þeir vilji að þessari grein sé breytt, sem var ekki ætlunin, eða hvort hugmyndin sé að setja inn í þingskapalög grein eins og þá sem stóð til að setja á sínum tíma og ég tel að það sé allt í lagi að líta á þetta mál í samhengi við heildarendurskoðun þingskapa. Það er allt í lagi að minni hyggju.
Loks út af konungum. Hér hefur verið talað um konunga, presta og páfa. Þá er það hárrétt að það eru margir sem bera konunga nöfn og einn sem ber það kannski með mestri rentu er forsrh. því að hann heitir í höfuðið á þeim konungi sem margir eða flestir kannast við sem Davíð konung og vona ég að hann hafi átt við það þegar hann talaði hér í ræðu sinni.