Skipan opinberra framkvæmda og opinber innkaup

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 20:47:13 (979)


     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (um þingsköp) :

    Virðulegi forseti. Ég tel að það sé eðlilegt að verða við þessari beiðni hv. þm. Reyndar eru ekki nema tveir hv. þm. á mælendaskrá en auðvitað getur þeim fjölgað. Í trausti þess að þetta stuðli að auðveldari afgreiðslu mála bæði nú og eins þegar þing kemur aftur saman vil ég fyrir mitt leyti segja það að ég tel ástæðulaust að halda umræðunni áfram að sinni.