Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Varðandi athugasemd hv. 2. þm. Vestf. þá telur forseti að hér sé ekki um það að ræða að frv. feli í sér breytingu á stjórnarskránni. Sé svo ber forseta að vísa máli frá ef í fyrirsögn þess er ekki kveðið svo á um að það sé breyting á stjórnarskrá. Það er hins vegar ekki hlutverk forseta að fella efnislegan úrskurð varðandi þetta frv. Þingið sjálft verður að taka afstöðu til þess.