Eyjólfur Konráð Jónsson
:
Hæstv. forseti. Mér sýnist um þetta frv. og efni þess að það sé þannig vaxið að jafnvel þótt það yrði að lögum þá væri það markleysa, þannig að ekki sé miklu hætt þótt úr því sem komið er verði þetta mál látið fljóta með til nefndar sem auðvitað verður að kanna það mjög gaumgæfilega. Ég veit af nánum kynnum af hæstv. dómsmrh. að hann mun veita hv. allsh., sem ég á sæti í, aðstoð og allar upplýsingar og hjálpa til við að greiða úr þessari flækju, eða þessum parti af flækjunni, sem verið er að spinna dag hvern. Ég held að það sé í lagi að málið fari til nefndar og mun sjálfur greiða því atkvæði að svo verði þótt ég sé alltaf á hverjum deginum að sannfærast betur og betur um það að ég hafi verið óþarflega orðvar í fullyrðingum mínum um það hvað hér sé verið að gera gagnvart sjálfstæði og fullveldi þessarar þjóðar.
Það er ljóst að það þarf að sækja langt rök til þess að komast að þeirri niðurstöðu að ekki sé verið að sverfa að, skulum við segja, fullveldi þjóðarinnar og stefna á þau mið sem eru ekki fengsæl og yrðu þjóðinni ekki til farsældar. Ég held að við eigum eftir að sjá það gerast á næstu mánuðunum og það er auðvitað vel að fleiri og fleiri átti sig á því að þetta verði aldrei að lögum.