Álit EFTA-dómstólsins um skýringu samnings um EES

23. fundur
Fimmtudaginn 17. september 1992, kl. 21:47:58 (999)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill skýra það aðeins nánar að það voru mismæli sem ollu því að hik kom á hver mundi taka til máls. En ljóst var að þar var um að ræða hv. 6. þm. Reykv. sem lögð var af stað í stólinn en forseti hafði mismælt sig. Forseti veit að hv. 2. þm. Vestf., sem þekkir þingsköp mjög vel og vill fara eftir þeim, virðir þetta við forseta og skilur hvað hér var um að ræða.