Jóhann Ársælsson:
Virðulegur forseti. Ég vil að það komi fram vegna þess sem hér hefur verið sagt á fundinum að á fundi með forseta í byrjun vikunnar óskaði ég eindregið eftir því að þetta mál sem hér um ræðir yrði tekið til umræðu í þessri viku og lét það koma þar fram að 1. flm. málsins yrði kominn hér á föstudag og á þeim fundi kom ekki fram að hæstv. menntmrh. gæti ekki verið við. En það kom aftur á móti fram á fundinum að það væri fullur vilji og ég hafði enga ástæðu til þess að hafa áhyggjur af því að þetta mál yrði ekki tekið til umræðu hér í vikunni. Vegna þessa hafa mér orðið mikil vonbrigði hvernig hefur farið um málið og ég tel að forseti hafi ekki gætt skyldu sinnar í því að koma máinu á dagskrá fyrr eða a.m.k. gera mönnum viðvart að menntmrh. gæti ekki verið viðstaddur á föstudag því að þá hefði verið hægt að gera aðrar ráðstafanir. Aðrir þingmenn hefðu þá getað mælt fyrir málinu.