Jarðhitaréttindi

28. fundur
Fimmtudaginn 08. október 1992, kl. 14:37:33 (1194)

     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Bara örfá orð vegna fsp. hv. 5. þm. Vestf. Ég vil segja það alveg skýrt að það er mitt áform að það stjfrv., sem ráðgert er að fyrir þingið komi, um eignarhald á auðlindum í jörðu verði afgreitt fyrir jólahlé þingsins. Að sjálfsögðu er það áform en ekki mál sem hægt er að segja nákvæmlega fyrir um hvernig fram muni vinda. Ég vil benda á að um málið hefur ítarlega verið fjallað á þingi eins og kom fram í minni fyrri ræðu, bæði því þingi sem síðast stóð og þar á undan og síðan, eins og ég held að ég hafi sagt áður, á næstum hverjum þingi alla þessa öld.