Misnotkun áfengismeðferðar

30. fundur
Þriðjudaginn 13. október 1992, kl. 13:40:18 (1256)

     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir þessi svör. Þau upplýstu svo sem ekki margt en ég ítreka spurningu mína: Er ráðherrann þeirrar skoðunar að þarna eigi sér stað einhver veruleg misnotkun? Hvaða rök færir hann fyrir þeim orðum sínum að menn séu í þessari meðferð án þess að hugur fylgdi máli?