Misnotkun áfengismeðferðar

30. fundur
Þriðjudaginn 13. október 1992, kl. 13:40:52 (1257)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekkert að dæma um það í hve miklum mæli slíkt kann að vera gert. Ég vil aðeins láta koma fram að það eru dæmi um slíkt. Hversu mikil þau eru eða mörg hef ég ekki hugmynd um. Þetta er eitt af þeim málum sem við munum ræða við SÁÁ í þeim viðræðum sem væntanlega munu hefjast við SÁÁ í dag eða á morgun.