Ingibjörg Pálmadóttir :
Virðulegi forseti. Hæstv. forsrh. boðaði í sumar að hæstv. ríkisstjórn mundi bæta þeim byggðarlögum og útgerðum skerðinguna sem verst verða úti vegna þorskbrestsins. Nú er spurt: Á hvaða hátt hyggst hann standa við þessi fyrirheit sín?
Menn eru orðnir langeygir eftir að heyra forsrh. útfæra þessar tillögur sínar og áttu satt að segja von á því í gær að heyra eitthvað um þetta mál í stefnuræðu forsrh.