Forsætisráðherra (Davíð Oddsson)
:
Virðulegur forseti. Eins og ég hef áður greint frá hafa meginreglurnar verið samþykktar í ríkisstjórninni um það með hvaða hætti menn vilja bæta þeim svæðum, skipum og útgerðum, sem mestan þorskbrest urðu að sætta sig við, skerðinguna. Ég hef áður sagt að þar eru menn að miða við tiltekna lágmarksprósentu sem ég hef áður greint frá. Ríkisstjórnin samþykkti síðan að fela þriggja manna nefnd sem þrír ráðherrar, sjútvrh., fjmrh. og viðskrh. skipuðu að útfæra nánar þessar tillögur. Ég vek athygli á því að viðskrh. vék að þessu máli sérstaklega í sinni ræðu hér í gær.