Framkoma ráðherra í utandagskrárumræðum

31. fundur
Miðvikudaginn 14. október 1992, kl. 16:20:22 (1335)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
    Sjálfsagt, virðulegi forseti. Ég vil aðeins upplýsa að þær upplýsingar sem ég hef í höndunum eru frá skrifstofustjóra fjármáladeildar ráðuneytisins. Það er sjálfsagt að afhenda hv. þm. eintak af þessum upplýsingum en þar kemur það fram ég var að greina frá áðan.