Fylgifrumvörp EES-samnings

33. fundur
Fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 14:59:29 (1376)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti verður að vænta þess að svo sé. Það er enn stefnt að því að standa við það samkomulag sem gert var á sínum tíma um að hægt verði að taka samninginn til afgreiðslu í nóvember eða fyrir nóvemberlok. Forseti hefur ekki ástæðu til að ætla annað en að svo verði og þau frumvörp sem enn eru óframkomin munu og eru að berast dag frá degi. Öðruvísi getur forseti ekki svarað þessari spurningu héðan úr forsetastóli.