Lánasjóður íslenskra námsmanna

34. fundur
Mánudaginn 19. október 1992, kl. 14:47:50 (1390)

     Finnur Ingólfsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er ekki rökrétt hugsun hjá hæstv. menntmrh. þegar hann veifar súluriti hér í ræðustólnum og segir: Við erum með sterkasta námslánakerfi í heimi. Í fyrri ræðu sinni bendir hann á að það sé alls ekki tímabært að endurskoða lögin sem sett voru í vor af því að það sé engin reynsla komin á þau. Þetta stenst ekki í röksemdafærslunni.