Lánasjóður íslenskra námsmanna

34. fundur
Mánudaginn 19. október 1992, kl. 14:48:50 (1391)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég sagði að ekki væri ástæða til að endurskoða lögin eða breyta þeim í þá veru sem frv., sem við erum að ræða, gengur út á. Og það er allt annað en þarna var verið að tala um.
    Ég fullyrði að við erum með sterkara námslánakerfi en frændur okkar á Norðurlöndum og fullyrðingar hv. þm. Svavars Gestssonar um að ég hafi þar á röngu að standa eru út í loftið.