Flugmálaáætlun og fjáröflun í flugmálum

36. fundur
Miðvikudaginn 21. október 1992, kl. 13:39:11 (1450)

     Jóhann Ársælsson :
    Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta frv. efnislega. Ég tel eðlilegt að það sé hér fram komið og að þessum málum sé komið í það horf að þau uppfylli þá samninga og þau skilyrði sem við höfum gengist undir. En það sem fær mig til að koma í ræðustólinn er að það fylgir ekki þessu frv. álit fjmrn. á því hvað þetta kosti. Mig langar til að beina því til hæstv. ráðherra hvort hann hafi hugmynd um hvað það muni kosta að gera þessar skuldir upp og ef hann hefur ekki upplýsingar um það hvenær þær upplýsingar komi til með að liggja fyrir.