Flugmálaáætlun og fjáröflun í flugmálum

36. fundur
Miðvikudaginn 21. október 1992, kl. 13:40:11 (1451)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég gat um áðan er búist við að við séum að tala um á milli 20 og 30 millj. kr. eftir þeim upplýsingum sem ég hef nýjastar um þau efni. En ég hef ekki töluna nákvæmlega eins og hún er í dag. Auðvitað mun samgn. fá fyllstu upplýsingar um þá hlið málsins.