Virðulegi forseti. Hér er vissulega hreyft athyglisverðu máli og vil ég lýsa eindregnum stuðningi
við tillöguna. En ég legg jafnframt áherslu á, eins og fram hefur komið, að athugun málsins er að hluta til í gangi nú þegar á vegum iðnrn. og fleiri aðila. Það breytir ekki því að ég tel rétt að samþykkja þessa tillögu, hún er góð og gagnleg. Ég nefni hér sérstaklega að ef vel tekst til um framkvæmd þessa máls getur það orðið til að draga verulega úr útblæstri koltvísýrings. Við þurfum eins og aðrar þjóðir að gera markvissar ráðstafanir til að draga úr slíkum útblæstri. Við höfum þar að ýmsu leyti þrengra svigrúm en aðrar þjóðir vegna þess að við höfum þegar gert þær ráðstafanir, t.d. að því er varðar upphitun húsa að olíuhitun húsnæðis er nánast úr sögunni. Sá útblástur koltvísýrings sem hér er um að ræða kemur því að mestu frá samgöngutækjum og fiskiskipa- og kaupskipaflotanum. Þar er áreiðanlega svigrúm til að draga verulega úr útblæstri með því að nota rafmagn, sem framleitt er í vatnsorkuverum, í auknum mæli. Þess vegna eiga flutningsmenn þakkir skildar fyrir að hafa tekið þetta mál upp og vonandi verður þessi tillöguflutningur ásamt öðru því sem verið er að gera til þess að unnt verði að draga verulega úr því að ljósavélar skipa séu látnar ganga þegar þau liggja langtímum saman í höfn.