Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er ágætt að heyra að unnið sé vel að þessum málum í ráðuneytinu, en mér fannst rétt að vekja athygli á þessu þegar mesta umræðan í þjóðfélaginu er í þá veru að eltast við einstæða foreldra í sambúð og ná þar því sem þeir hafa, kannski af illri nauðsyn, verið að svíkja undan skatti, eins og kallað er. Sú umræða hefur verið áberandi en minna verið tekið á hinu.