Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Vegna þess sem hv. þm. sagði þá vil ég eingöngu að það komi fram að ég tel það vera skynsamlegt að hafa meiri sveigjanleika í fjárveitingum til einstakra ráðherra og ráðuneyta og að ábyrgð þeirra á niðurstöðunni sé síðan meiri. Þetta eru stundum kölluð rammafjárlög og ég hygg að okkur farnaðist betur ef við hefðum alla ráðherrana í ríkisstjórninni sem fjmrh. yfir sínum hlut. Það er oft þannig að jafnvel á tólf mánuðum breytast aðstæður og það kann að vera skynsamlegt að færa til fjármuni og ég tel að það sé rétt svo fremi sem þingið verði síðan að leggja blessun sína yfir það og þá stendur ráðherrann auðvitað ábyrgur fyrir niðurstöðunni.