Tilhögun þingfundar

40. fundur
Þriðjudaginn 27. október 1992, kl. 18:19:16 (1593)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil leita upplýsinga um það hvernig hátta eigi þinghaldi í kvöld. Það hefur engin tilkynning borist til þingflokkanna um að hér eigi að verða kvöldfundur. Við sjáum hins vegar að það er farið að undirbúa borðhald hér niðri sem bendir til þess að það sé ætlun einhverra að halda fundi í kvöld en ég man ekki til þess, alla vega þá vetur sem ég hef setið hér, að hér séu haldnir kvöldfundir án þess svo mikið sem að láta þingflokkana vita af því að slíkt standi til.