Kvöldfundur

40. fundur
Þriðjudaginn 27. október 1992, kl. 19:07:15 (1602)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þegar rætt var við formenn flokka, formenn þingflokka og í forsætisnefnd var gengið út frá því strax í byrjun að gert væri ráð fyrir löngum fundum á þriðjudögum án þess að semja þyrfti um það sérstaklega.
    Út af dagskrá eru tekin 5., 6., 7. og 8. dagskrármál. Fleira liggur ekki fyrir þessum fundi. Fundinum er slitið.