Málþing um Sögu kristni á Íslandi í þúsund ár

41. fundur
Miðvikudaginn 28. október 1992, kl. 13:40:55 (1607)

     Jón Helgason :
    Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að það kom mér nokkuð á óvart að fá þetta bréf því eftir að hafa litið yfir það í fljótu bragði sló það mig þannig að Reykjavíkurborg væri að einhverju leyti búin að taka að sér þetta verkefni sem Alþingi hafði forgöngu um. Ég vissi ekki annað en ætlunin væri að Alþingi mundi ljúka því.