Málþing um Sögu kristni á Íslandi í þúsund ár

41. fundur
Miðvikudaginn 28. október 1992, kl. 13:45:23 (1610)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti Alþingis og fyrrv. forseti sameinaðs þings eru alveg sammála um að þetta er alvörumál og bera báðar mikla virðingu fyrir því eins og þingmenn almennt munu gera, þorir forseti að fullyrða. Ég held að það sé enginn misskilningur sem ríkir þar á milli þó fundarstaðurinn sé í Viðey að þessu sinni.