Fuglaveiðar og fuglafriðun

41. fundur
Miðvikudaginn 28. október 1992, kl. 18:10:39 (1637)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þar sem hæstv. umhvrh. virtist ekki skilja það sem ég sagði áðan ætla ég að útskýra það aðeins betur. Ég tel að það að vera sífellt að breyta lögum aðeins í þá veru að setja reglugerðarheimildir inn í lögin, reglugerðarheimildir til ráðherra, en ekki að taka efnislega á því að öðru leyti, sé að koma aftan að fólki.