Fuglaveiðar og fuglafriðun

41. fundur
Miðvikudaginn 28. október 1992, kl. 18:12:26 (1640)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þetta er að verða dálítið skrýtin umræða því að hv. þm. er í rauninni að segja að í hvert einasta skipti sem í löggjöf, sem samþykkt er hér á hinu háa Alþingi, er gert ráð fyrir að sett verði reglugerð um nánari útfærslu, þá sé verið að fara aftan að borgurum landsins. Þetta er auðvitað fullkomlega út í hött og alger fjarstæða.