Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
:
Virðulegi forseti. Það eru raunar engar nýjar upplýsingar sem hafa komið fram í þessu svari en ég þakka hæstv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli.
Ég ætla að benda á það í frv. til fjárlaga fyrir árið 1993 er reiknað með auknum arðgreiðslum frá Landsvirkjun ásamt fleiri aðilum, Rarik, Íslenskum aðalverktökum og fleiri. Það er sem sagt reiknað með því að ríkissjóður fái auknar arðgreiðslur frá Landsvirkjun. Á sama tíma er ríkissjóður líka að óska eftir því að Landsvirkjun taki þátt í að greiða niður orkuverðið til hitunar. Þarna kemur fram ákveðinn tvískinnungur finnst mér. En kannski mætti hugsa sér að þessar arðgreiðslur frá Landsvirkjun yrðu notaðar til þess að auka niðurgreiðslur á húshitun.