Flutningur á starfsemi Landhelgisgæslunnar

45. fundur
Þriðjudaginn 03. nóvember 1992, kl. 19:23:03 (1849)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég veit að hv. 3. þm. Reykv. er afskaplega annt um að menn framfylgi eðlilegum þingsköpum og þess vegna hefur hann tekið til sín eitthvað allt annað en það sem ég sagði úr þessum stól. Ég gerði engar athugasemdir við það út á hvaða braut þessi umræða hefur leiðst. Það er einmitt kosturinn við huggulega umræðu um þingmannamál að menn geta leyft sér að sveigja umræðuna yfir á tengd svið. Ég tel ekki að hér hafi á nokkurn hátt verið farið út fyrir það sem tengdist því máli sem var til umræðu.