Herra forseti. Ég tel mér skylt og rétt að koma inn í þessa umræðu af marggefnu tilefni. Fyrst og fremst kannski vegna þess að hér er þörfu máli hreyft hvað áhrærir sölu á okkar síldarafurðum á erlendum mörkuðum. Það þarf ekki að fara lengra aftur í söguna en til 1968 þegar síldarstofninn hrundi og svo nú, hefur sala á síld verið vandi okkar Íslendinga þegar hún fór að veiðast aftur og höfum við m.a. staðið frammi fyrir þeim vanda að vera t.d. í samkeppni við Kanadamenn sem hafa verið að selja síld á 25% lægra verði en við Íslendingar höfum talið okkur þurft að fá fyrir þessa markaðsafurð.
Það verður að segjast eins og er að þá síldin er farin að veiðast með slíkum hætti og nú hefur gerst vekur það undrun hve mikið er sett í mjölafurðir. Sú spurning vaknar líka: Hvers vegna er síldin ekki unnin meir og betur en gert er? Hefur eitthvað brugðist í sölukerfi okkar Íslendinga? Sé orsakanna leitað þá eru þær fyrst og fremst að við erum að reyna að selja úrvalsvöru á allt of háu verði vegna þess að aðrir hafa komist inn á markaðinn á meðan lægð var í síldveiðum okkar Íslendinga.
Hv. 5. þm. Austurl. ásamt Sigbirni Gunnarssyni flytja hér merkilega þáltill. og verð ég að vitna
aðeins í greinargerð þeirra, með leyfi forseta, þar sem segir:
,,Ljóst má vera að heimild er í lögum um að aðrir flytji út saltaða síld en síldarútvegsnefnd. Sú hefur hins vegar ekki orðið raunin, heldur hefur síldarútvegsnefnd alfarið séð um útflutning saltaðrar síldar í krafti einkaréttar er lögin kveða á um.``
Ekki er þetta nú alfarið svo vegna þess að heimildarákvæði eru um það að aðrir megi ef þeir geta. En þó hlýtur sú spurning að vakna: Hafa síldarsaltendur sett þetta alfarið í hendur síldarútvegsnefndar og nánast legið í dvala á milli síldarvertíða án nokkurra aðgerða til að reyna að afla markaða? Það væri fróðlegt að fá það fram hér: Hafa hinir frjálsu síldarsaltendur lagt sig fram um að selja þessa afurð? Það er í sjálfu sér óhugnanlegt að svo mikið af þessari síld skuli fara í mjölframleiðslu eins og raun ber vitni, á tímum þegar við vitum að mikil hungursneyð ríkir í heiminum og vegna þeirrar staðreyndar líka að við Íslendingar teljum okkur trú um að Íslandssíld sé besta síld sem finnst, a.m.k. í Norðurhöfum. Ég tel að ef eitthvað hefði átt að gera hefði átt að gera meiri kröfur til síldarútvegsnefndar um að standa sig betur í þeirri sölumarkaðsleit sem þeir hafa unnið að.
Ég sé ekki annað en það sé rétt og eðlileg tímasetning að þessi tillaga sé flutt til að reyna að skerpa á þeim aðilum sem hafa haft með sölu síldar að gera. Það er líka annað mál að sú síld hefur verið flutt út söltuð með þeim hætti sem í svo ríkum mæli hefur verið ástundaður á Íslandi. Þeir ytra taka síldina upp og flaka hana, setja hana í krukkur og selja hana til Íslands aftur. Það er mikið að í þessum þætti framleiðslu sjávarafurða okkar og það er vissulega brýnt að hreyfa því máli. Ég þakka flm. fyrir að hafa gert það með þessum hætti.