Samgönguráðherra (Halldór Blöndal)
:
Herra forseti. Eins og fram kemur í skipan nefndarinnar eru þessi mál í höndum Vegagerðarinnar. Það vekur sérstaka athygli að Skagfirðingur er sem er ritari nefndarinnar sem auðvitað sýnir þá þungu og ríku áherslu sem á málið er lagt. En ég vil líka vekja athygli á því að þó áætlun sé lokið hefur enn ekki verið séð fyrir því hvernig fjármagns skuli aflað til þessa sérstaka verkefnis sem er að sjálfsögðu erfiðasti og viðkvæmasti þátturinn í málinu.