Landbúnaðarstefna

47. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 11:23:34 (1904)

     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Það er nauðsynlegt að fá það fram undir þessari umræðu hvort það sé rétt að hæstv. landbrh. styðji það að lambakjöt og mjólkurafurðir séu seld á bílaplönum. Og hvort hann telji að slík stefna, ef hann styður hana, samræmist þeirri löggjöf sem Alþingi Íslendinga hefur sett um meðferð á matvælum.