Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson)
:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv félmrh.:
,,Má vænta þess að ráðherra beiti sér fyrir könnun á atvinnuleysi í landinu með skoðanakönnunum eða öðrum úrtakskönnunum eins og gert er erlendis?``
Eins og öllum er kunnugt hefur fréttaflutningur verið á þann veg að menn eru að bera saman tölur um atvinnuleysi á Íslandi við atvinnuleysi í öðrum löndum. Meðan þannig er að málum staðið eins og hér er að atvinnuleysistölur á Íslandi byggja fyrst og fremst á því að þeir sem hafa rétt á atvinnuleysisbótum láta skrá sig en erlendis eru gerðar úrtakskannanir til þess að kanna hverjir það séu sem að eigin mati séu atvinnulausir, þá er ekki um sambærilegan grunn að ræða.
Þegar sáralítið atvinnuleysi er í landinu eins og verið hefur á undanförnum árum hefur þetta ekki komið að sök. En miðað við þær aðstæður sem nú eru upp komnar tel ég að þessi samanburður sé að verða mjög villandi. Að mínu viti er það mikil nauðsyn að gerð verði úrtakskönnun með eðlilegum hætti og þær verði gerðar reglulega vegna þess að allir vita að það eru margir raunverulega mjög stórir hópar í þjóðfélaginu sem geta verið atvinnulausir án þess að þeir séu skráðir það vegna þess einfaldlega að þeir eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum.