Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu

48. fundur
Fimmtudaginn 05. nóvember 1992, kl. 17:41:00 (1958)

     Eggert Haukdal :
    Virðulegi forseti. Enn þá er margt óljóst í sambandi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og hann á eftir að koma til ítarlegrar umfjöllunar á Alþingi. Því tel ég ekki tímabært að taka nú ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um þennan samning og greiði því ekki atkvæði.